Lífeyrissjóðalán Grindvíkinga í greiðsluskjóli

Lífeyrissjóðalán Grindvíkinga í greiðsluskjóli

– og frekari ráðstafanir til athugunar

Landssamtök lífeyrissjóða kanna nú hvernig lífeyrissjóðir geti innan ramma laga tekið þátt í að mæta þeim erfiðu aðstæðum sem heimili og fjölskyldur vinnandi fólks í Grindavík standa nú frammi fyrir og sem sett hafa afkomu og eignir þeirra í hættu. Nú þegar hafa þeir tryggt tímabundið greiðsluskjól vegna sjóðfélagalána og á meðan það stendur frestast greiðsla afborgana, vaxta og verðbóta.

Kallað er eftir því að lífeyrissjóðir gangi lengra og vísað í því sambandi til bankanna sem felldu niður vexti og verðbætur til þriggja mánaða vegna húsnæðislána Grindvíkinga. Ákvörðun bankanna var kynnt sem hluti af heildstæðri lausn fyrir Grindvíkinga, með aðkomu stjórnvalda. Lífeyrissjóðir voru ekki hafðir með í ráðum vegna þessa samkomulags og ljóst að vinna þarf á breiðum grunni með stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins að því að kanna hvaða lausnir koma til greina af hálfu lífeyrissjóða. Þetta samtal hefur ekki átt sér stað.

Unnið verður að því á næstu dögum að tryggja farsæla lausn með aðkomu lífeyrissjóða.