Gera ll.is að upphafssíðu Senda síðu Prenta síðu Minnka letur Stækka letur rss fréttaveita
Landssamtök lífeyrissjóða
Sætúni 1
105 Reykjavík
Sími: 563-6450
Fax: 563-6401
Lífeyrissjóðirnir eru tvímælalaust eitt af óskabörnum íslensku þjóðarinnar. Í heild mynda sjóðirnir lífeyriskerfi sem landsmenn eru stoltir af og vekur aðdáun erlendis.

 

Þrennt einkennir lífeyrissjóðina:

  • Sjóðsöfnun.· Við leggjum saman í sjóð sem er ávaxtaður til að greiða okkur öllum lífeyri til æviloka. Þannig er lífeyrir framtíðarinnar tryggður með traustum sjóði fremur en vaxandi skattbyrðum á afkomendur okkar.
  • Samtrygging. Aðild að lífeyrissjóði tryggir þér verðtryggðan lífeyri til æviloka. Með samábyrgð og þátttöku allra tryggjum við einnig lífeyri til þeirra sem verða fyrir áföllum vegna slysa eða sjúkdóma.
  • Skylduaðild. Aðild að lífeyrissjóðum er skylda samkvæmt landslögum og er forsenda þess að við getum dreift áhættunni, forðast mismunun og tryggt öllum lífeyri, óháð efnahag, aðstæðum eða kyni.
Með lífeyrissjóðunum leggjum við grunninn að fjárhagslegu öryggi okkar allra, alla ævi.


Lífeyrissjóðirnir veita þér og þínum nánustu aukið öryggi.

 

Réttur þinn til öruggrar afkomu í framtíðinni er einn af hornsteinum okkar samféalgs. Lögum samkvæmt á allt starfandi fólk á Íslandi að greiða í lífeyrissjóð. Lágmarksiðgjald er 12% af heildarlaunum og greiðir launamaðurinn 4% en launagreiðandi 8%.


Bæklingurinn um lífeyrisréttindi einstaklingar er kominn út, hægt er að nálgast rafræna PDF-útgáfu af honum hér.