Landssamtök lífeyrissjóða Landssamtökin eru heildarsamtök lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Landssamtökin hafa innan vébanda sinna 33 lífeyrissjóði sem í eru um 190 þúsund greiðandi sjóðfélagar í lok árs 2009.
Eignir lífeyrissjóða í Landssamtökum lífeyrissjóða voru um 1.768 milljarðar króna í lok árs 2009, sem svarar til 99,5% heildareigna allra lífeyrissjóða á Íslandi.
Stærstu lífeyrissjóðir í Landssamtökum lífeyrissjóða miðað við hlutfall skiptingar heildareigna: Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Gildi lífeyrissjóður, Stapi lífeyrissjóður og Sameinaði lífeyrissjóðurinn.