DÓMAR HÆSTARÉTTAR (1970 - 2000)
OG
ÁLIT UMBOÐSMANNS ALÞINGIS (1988 - 2000)
Í LÍFEYRISMÁLUM
Formáli
| Í riti þessu eru reifaðir flestir dómar Hæstaréttar er varða lífeyrismál frá árinu 1970 til loka árs 1999. Þá er og að finna reifanir á álitum umboðsmanns Alþingis vegna lífeyrismála frá því hann tók til starfa og til loka árs 1999. Í ritinu er einnig að finna skrá yfir alla Hæstaréttardóma er fundust í dómasafni Hæstaréttar frá 1970 til 1999 og varða lífeyrismál eða lífeyrissjóði með einhverjum hætti. Sambærilega skrá er einnig að finna yfir álit umboðsmanns Alþingis. Dómar eru flokkaðir eftir efni og hverjum þeirra gefið númer. Dómar koma iðulega fyrir oftar en einu sinni en í slíkum tilfellum er vísað til númers þar sem reifun er að finna. Sami háttur er viðhafður varðandi álit umboðsmanns. Ritinu er ætlað að gefa yfirlit yfir dóma um lífeyrismál og auðvelda leit að dómum og fordæmum um úrlausn ágreiningsmála um lífeyrismál. Reifanir eru misítarlegar og iðulega nauðsynlegt að kynna sér efni úrlausnarinnar nánar í dómasafni eða skýrslum umboðsmanns Alþingis. Reykjavík, 25. apríl 2000. Guðjón Axel Guðjónsson |