Heildarsamtök atvinnurekenda og launamanna í Hollandi sömdu 7. júní s.l. um að hækka eftirlaunaaldur úr 65 í 66 ár 2020, í ljósi þess að lífslíkur Hollendinga hafa aukist líkt og flestra annarra þjóða sem búa við þokkalega velmegun. Jafnframt felst í samkomulaginu að endurskoða skuli á fimm ára fresti hvort eftirlaunaaldur skuli hækka enn frekar.
Hjálparstofnun kirkjunnar í Noregi fer fram á að stjórnvöld þar í landi rannsaki þegar í stað hvort eitthvað sé hæft í því að olíufélög, sem eftirlaunasjóður norska ríkisins, Olíusjóðurinn svokallaði, á eignarhluti í, tengist stríðsglæpum í Afríkuríkinu Súdan á árunum 1997 til 2003. Stofnunin beinir því jafnframt til ríkisstjórna Svíþjóðar, Malasíu og Austurríkis að kanna það sem að þeim snýr í málinu.
Verkamenn hreinsa strönd í Alabama í kjölfar olíuslyssins á Mexíkóflóa.
Olíumengunarslysið mikla á Mexíkóflóa hefur orðið tilefni umræðna meðal fjárfesta í röðum lífeyrissjóða um fjárhagslega áhættu tengda starfsemi af þessu tagi. Það er ekki aðeins gengislækkun hlutabréfa í BP-olíufélaginu sem veldur mönnum áhyggjum heldur ekki síður ímyndarskaðinn sem olíuhneykslið skapar.
Arnar Sigurmundsson í ræðustóli á fréttamannafundinum. Við háborðið sitja Hrafn Magnússon, Már Guðmundsson og Sturla Pálsson.