Miðvikudagur 1. 09. 10
Danir greiða minna í lífeyrissjóði í ár en í fyrra
Lífeyrissparnaður í Danmörku verður minni árið 2010 en árin þar á undan. Þegar á heildina er litið má ætla að Danir leggi alls 6 milljörðum danskra króna minna fyrir til efri áranna nú en í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Forsikring & Pension.
Þriðjudagur 24. 08. 10
Danskir lífeyrissjóðir í viðræðum um að stofna áhættufjárfestingarsjóð
Forystumenn í lífeyrissjóðakerfi Danmerkur eiga í viðræðum við dönsku ríkisstjórnina um að stofna áhættufjárfestingarsjóð og leggja honum til 5 milljarða danskra króna eða um 670 milljónir evra. Danska efnahags- og viðskiptaráðuneytið tilkynnti þetta og fylgdi sögu að Brian Mikkelsen efnahagsráðherra hefði átt fund með fulltrúum bæði lífeyrissjóða almenns og opinbers vinnumarkaðar.
Föstudagur 20. 08. 10
Ríkissáttasemjari skipar sérstaka nefnd um starfsemi lífeyrissjóðanna
Stjórn og varastjórn Landssamtaka lífeyrissjóða samþykkti á fundi sínum 24. júní s.l. „að skipa þriggja manna nefnd óháðra, óvilhallra og hæfra einstaklinga sem fái það hlutverk að gera úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins á Íslandi í október 2008“
Sömu aðilar samþykktu jafnframt að fela ríkissáttasemjara að tilnefna þrjá einstaklinga sem skipaðir verða í nefndina.
Föstudagur 20. 08. 10
Framtakssjóðurinn kaupir Vestia
Framtakssjóður Íslands, sem er í eigu lífeyrissjóðanna, hefur keypt eignarhaldsfélagið Vestia ehf. af NBI hf. (Landsbankanum). Átta fyrirtæki fylgja Vestia til Framtakssjóðs en hjá þeim vinna um 6000 manns. Framtakssjóðurinn greiðir Landsbankanum 19,5 milljarða króna fyrir Vestia og bankinn mun jafnframt eignast 30% hlut í sjóðnum.
Mánudagur 16. 08. 10
Fjölgun öryrkja minni en búist var við
Verulega hefur hægt á fjölgun örorkulífeyrisþega, þ.e. þeirra sem skráðir eru með 75% örorku eða meira, á þessu ári miðað við það síðasta. Fjöldi örorkulífeyrisþega var 15.842 þann 1. júlí síðastliðinn en hann var 15.677 í ársbyrjun þannig að fjölgunin á árinu nemur 165 einstaklingum á fyrri hluta ársins. Þessar upplýsingar koma fram á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins
www.sa.is.
Þetta er mikil breyting frá fyrri árum þar sem örorkulífeyrisþegum fjölgaði um 500-1.300 árlega á árabilinu 2004-2009. Nýgengi örorku, þ.e. fjöldi einstaklinga sem fengu úrskurð um 75% örorku á hverjum tíma, nam á bilinu 1.200-1.500 á árunum 2004-2009. Á fyrri hluta þessa árs fengu 610 einstaklingar úrskurð um 75% örorku sem er mikil fækkun frá sama tíma árið 2009 en svipað og var 2008.