Fulltrúar 20 lífeyrissjóða undirrituðu viljayfirlýsingu í nóvember 2009, ásamt fulltrúum ríkisstjórnarinnar, þar sem kveðið er á um samstarf um undirbúning að fjármögnun, útboði og framkvæmdum við nýbyggingu Landspítala við Hringbraut.
Nýtt hlutafélag í eigu ríkisins hefur nú tekið við undirbúningsverkinu, í samræmi við lög sem tóku gildi 1.júlí 2010. Gert er ráð fyrir að fulltrúar þess og lífeyrissjóða ræði saman á næstunni og þar skýrist hvort og þá hvernig lífeyrissjóðir komi að Landspítalamálinu.
Hönnunarsamkeppnin var síðasta verkefni verkefnisstjórnar nýs Landspítala, áður en nýja hlutafélagið tók við keflinu.
Á heimasíðu Landspítala er birt í heild fréttatilkynning sem gefin var út um samkeppnina, stöðu málsins og næstu skref, ásamt myndum frá athöfninni í dag.