Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er: Hvað einkennir samsetningu
íslenska lífeyriskerfisins og hvernig er samsetning þess í samanburði
við lífeyriskerfi valinna OECD ríkja?
Markmið ritgerðarinnar er að draga fram sérkenni íslenska
lífeyrissjóðakerfisins í samanburði við önnur OECD ríki. Til
nánari greiningar eru fimm af aðildarríkjum OECD tekin til nánari
skoðunar með það að markmiði að greina í smáatriðum lífeyriskerfi
þeirra. Umrædd ríki eru: Bandaríkin,
Bretland, Noregur, Frakkland og Holland. Meginþættir sem litið er til eru eftirfarandi:\
Þá mun Andrés sérstaklega rannsaka áhrif efnahagshrunsins á lífeyrissjóðina hér á landi og í samanburðarríkjunum.