Holland – Félag hollenskra tryggingafræðinga (AG) hefur staðfest að breyta þurfi spám um lífslíkur töluvert.
Í yfirlýsingu sagði AG að lífslíkur aukist mjög mikið en þar var bent á að: „Niðurstöður rannsókna okkar á árunum 2003 til 2008 sýna að fyrri spár um lífslíkur hafa verið of lágar.“
Með því að rannsaka tölur um dánartíðni af fimm ára tímabil frá hollensku Hagstofunni, var komist að því að börn fædd á árunum 2003 til 2008 munu lifa 0.6 árum lengur en áður var talið; drengir muni ná 77.4 árum að meðaltali en stúlkur 81.7 árum. Aukning á lífslíkum kvenna hefur hægt á sér og því hefur munurinn á lífslíkum kynjanna minnkað.
Eftirlaunasjóður norska ríkisins, Olíusjóðurinn svokallaði, ætlar að selja hlutabréf sín í sautján tóbaksframleiðslu- fyrirtækjum fyrir alls 1,8 milljarða evra og lýsir því jafnframt yfir að hann muni ekki fjárfesta framvegis í tóbaksframleiðslu. Siðanefnd sjóðsins lagði þetta til við ríkisstjórn Noregs og Sigbjörn Johnsen fjármálaráðherra fékk afdráttarlausan stuðning í Stórþinginu við ákvörðun sína.
Finnbogi Jónsson framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands
Finnbogi hefur mikla reynslu í íslensku atvinnulífi. Hann lauk prófum í eðlisverkfræði og rekstrarhagfræði frá háskólum í Svíþjóð og frá Háskóla Íslands auk náms í stjórnun og alþjóða viðskiptum í Frakklandi. Finnbogi starfaði í iðnaðarráðuneytinu, var framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar, var lengi forstjóri Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað og var starfandi stjórnarformaður Samherja um árabil. Finnbogi var jafnframt framkvæmdastjóri SR-Mjöls og síðustu ár hefur hann verið framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Finnbogi hefur jafnframt setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og gegnt fjölda trúnaðarstarfa í atvinnulífinu.
Í lok nóvember 2009 hefur hrein eign lífeyrissjóðanna hækkað um 140 ma.kr. frá sama tíma fyrir ári sem jafngildir hækkun upp á 8,6% að nafnvirði. Hrein eign lífeyrissjóðanna er nú smá saman að nálgast það sem hún var fyrir hrun bankanna. Þannig var hrein eign lífeyrissjóðanna í lok nóvember 7,9 mö.kr. lægri en hún var í lok september 2008 sem jafngildir 0,4% lækkun að nafnvirði. Lækkunin að raunvirði á þessu tímabili er þó mun meiri, eða 11,8%.