Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, flutti fróðlegt erindi um framtíð íslenska verðbréfamarkaðarins og Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, greindi frá þeirri vinnu sem farið hefur fram um kerfisbreytingu úr jafnri réttindaávinnslu í aldurstengt réttindakerfi.

Aðalfundur Landssamtaka lífeyrissjóða verður haldinn n.k. miðvikudag 11. maí kl. 14.30 á Grand Hótel Reykjavík. Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, flytja erindi um framtíð íslenska verðbréfamarkaðarins. Er hægt að tryggja vöxt og viðgang hans á næstu árum? Þýðing og aðkoma lífeyrissjóða að innlendum verðbréfamarkaði. Þá mun Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, flytja erindi um vanda íslenska lífeyrissjóðakerfsins. Kerfisbreytingu úr jafnri réttindaávinnslu í aldurstengt réttindakerfi og um örorkubyrði lífeyrissjóðanna og hugsanlega aðkomu ríkisvaldsins að þeim málum.
Aðalfundur Landssamtaka lífeyrissjóða verður haldinn mánudaginn 10. maí n.k. á Grand Hótel Reykjavík og hefst fundurinn kl. 14.30.
Fulltrúaráðsfundur Landssamtaka lífeyrissjóða verður haldinn fimmtudaginn 4.desember n.k. kl. 14.30 á Grand Hótel Reykjavík, Hvammi. Dagskrá mál fundarins verða: "Þróun efnahagsmála á næsta ári, svo og þróun á verðbréfamörkuðunum" og "Örorkulífeyrisbyrði lífeyrissjóðanna. Hvað er til ráða?"
Nú í vikunni efndu Landssamtök lífeyrissjóða til fundar um "Siðferðislegar fjárfestingar (Socially responsible investing SRI)". Fyrirlesarar voru þau Ketill Berg Magnússon, kennari við Háskólann í Reykjavík og Sólveig Stefánsdóttir, viðskiptafræðingur hjá Virðingu h.f. Fjölmenni var á fundinum og voru umræður fjörlegar.
Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða boðar til aðalfundar þriðjudaginn 20. maí n.k. á Grand Hótel Reykjavík, Gullteig B. Fundurinn hefst kl. 15.30.
Auk venjulegra aðalfundarstafa mun Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar h.f. og Þórólfur Árnason, borgarstjóri, flytja erindi um “Ímynd og sérstöðu íslensku lífeyrissjóðanna.”
Á fundi LL fyrir skömmu um aðkomu lífeyrissjóða að stjórnun og rekstri fyrirtækja flutti Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, athyglisvert erindi. Í erindi Ara kom fram að lífeyrisréttindi landsmanna væru hluti af umsömdum starfskjörum. Ástæða væri til þess fyrir lífeyrissjóðina að setja reglur um hvort og þá hvenær nauðsynlegt kynni að vera fyrir sjóði að hafa áhrif sem hluthafar í stjórnun og við stjórnarkjör í fyrirtækjum sem þeir hafa fjárfest í. Sjóðirnir þurfi hins vegar að gæta hlutleysis í viðskiptaátökum.