Miðvikudagur 19. 12. 07
Héraðsdómur Reykjavíkur: Lífeyrir ekki skattlagður að hluta sem fjármagnstekjur.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfu ellilífeyrisþega, sem vildi greiða fjármagnstekjuskatt af þeim hluta lífeyris, sem talinn var ávöxtun af innborguðu iðgjaldi. Í rökstuðningi dómsins segir að óumdeilt sé að lífeyrissjóðir, sem starfa á grundvelli samtryggingar, sundurgreini ekki lífeyrisgreiðslu til lífeyrisþega, hvorki hlutfallslega né með tilgreiningu fjárhæða, þannig að sjá megi á skilagrein eða með öðrum hætti hvað sé höfuðstóll og hvað ávöxtun. Greiðslan sé aðeins innt af hendi sem lífeyrir, ósundurgreint, enda sé hvorki í lögum né samþykktum lífeyrissjóða að finna ákvæði sem mæli fyrir um slíka skiptingu lífeyrisgreiðslunnar eða vísbendingu um að gerður sé greinarmunur á þessu tvennu við útborgun lífeyris.
Föstudagur 16. 11. 07
GILDI valinn besti lífeyrissjóðurinn á Íslandi þriðja árið í röð af tímaritinu IPE
Guðmundur Bergþórsson starfsmaður eignastýringar Gildis tekur við verðlaununum í Vín.
Gildi-lífeyrissjóður hefur verið valinn besti lífeyrissjóðurinn á Íslandi árið 2007 af tímaritinu Investment & Pensions Europe (IPE). Er þetta þriðja árið í röð sem sjóðurinn hlýtur þessi verðlaun. IPE er fagtímarit um lífeyrismál þar sem fjallað er um það helsta í lífeyrismálum á hverjum tíma í Evrópu.
Þriðjudagur 30. 10. 07
Fræðsluvefur um lífeyrismál ,,gottadvita.is” opnaður.
Gunnar Baldvinsson, formaður fræðslunefndar LL, Arnar Sigurmundsson, formaður LL og Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, við opnun fræðsluvefsins "Gottadvita.is".
Mánudaginn 29. október s.l opnaði Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, nýjan fræðsluvef Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál. Vefslóðin er ,,gottadvita.is.” Á heimsíðum flestra lífeyrissjóða er hnappur sem hægt er að smella á til að færast á fræðsluvefinn. Mikil vinna var lögð í uppsetningu vefsins með það að leiðarljósi að auðvelt væri að finna upplýsingar. Þannig eru t.d. öll svör tiltölulega stutt og hnitmiðuð. Vefnum er ritstýrt af Gunnari Baldvinssyni, framkvæmdastjóra Almenna lífeyris- sjóðsins og Hrafni Magnússyni, framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða. Vefurinn er unninn af Anok-margmiðlun, en Hvíta húsið hefur aðstoðað við útlit vefsins.
Þriðjudagur 2. 10. 07
Félagsmálaráðherra skipar verkefnisstjórn er endurskoðar almannatryggingalöggjöfina.
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 23. maí sl. og í ljósi þess að almannatryggingar munu flytjast frá heilbrigðis- ráðuneyti til félagsmálaráðuneytisins þann 1. janúar 2008 skipað fimm manna verkefnisstjórn sem vinna skal heildstæðar tillögur um eðlilegar fyrstu aðgerðir, langtíma stefnumótun og nauðsynlegar breytingar á almanna- tryggingalöggjöfinni.
Verkefnisstjórnin skal skila félagsmálaráðherra samræmdum tillögum í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, annars vegar fyrir 1. desember 2007 varðandi eðlilegar fyrstu aðgerðir og hins vegar fyrir 1. nóvember 2008 varðandi þá heildarendurskoðun almannatryggingalöggjafarinnar sem framundan er.
Föstudagur 14. 09. 07
Sigríður Lilly Baldursdóttir nýr forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins.
Sigríður Lilly Baldursdóttir nýr forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins frá 1. nóvember n.k.
Karl Steinar Guðnason mun láta af störfum forstjóra Tryggingastofnunar 1. nóvember n.k. Við starfinu tekur Sigríður Lillý Baldursdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Tryggingastofnunar.
Karl Steinar hefur verið forstjóri Tryggingastofnunar í 14 ár eða frá 1. október 1993. Hann hugðist láta af störfum vegna aldurs nú á haustdögum en það varð að samkomulag að starfslok hans yrðu 1. nóvember.
Sigríður Lillý Baldursdóttir hefur starfað sem framkvæmdastjóri þróunarsviðs Tryggingastofnunar undanfarin ár. 1996-2001 var hún skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu, verkefnisstjóri í utanríkisráðuneytinu árin 1994-1996 en fram til þess tíma var hún lektor við Tækniskóla Íslands og stundakennari við Háskóla Íslands. Hún sat í Tryggingaráði frá 1987-1995. Sigríður Lillý er eðlisfræðingur að mennt og hefur stundað rannsóknir í endurhæfingarverkfræði.
Föstudagur 7. 09. 07
Tryggingafræðileg lífeyrissjóðanna batnaði verulega í fyrra.
Tryggingafræðileg staða lífeyrissjóða án ábyrgðar í árslok 2006 batnaði frá fyrra ári. Deildum með neikvæða stöðu fækkaði og halli þeirra var minni. Að sama skapi fjölga deildum með jákvæða stöðu og voru sjö deildir með jákvæða stöðu yfir 10%. Þessar upplýsingar koma fram í nýrri skýrslu Fjármálaeftirlitsins um strfsemi lífeyrissjóðanna í fyrra.
Þriðjudagur 4. 09. 07
Skýrsla FME um lífeyrissjóðina komin út. Hrein raunávöxtun 10,23% í fyrra og 14,9% raunhækkun eigna.
Hrein eign til greiðslu lífeyris í árslok 2006 jókst um tæplega 23% og nam tæplega 1500 milljörðum króna samanborið við um 1.219 milljarða í árslok 2005. Samsvarar þetta um 14,9% raunaukningu miðað við vísitölu neysluverðs. Hrein raunávöxtun miðað við neysluverðsvísitölu var 10,23% á árinu. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar sl. 5 ára var 8,4% og meðaltal sl. 10 ára var 6,7%.
Þriðjudagur 14. 08. 07
Raunávöxtun 20 stærstu lífeyrissjóðanna mjög góð í fyrra.
Samkvæmt athugun sem Landssamtök lífeyrissjóða hafa gert var raunávöxtun lífeyrissjóðanna mjög góð í fyrra. Athugunin er unnin samkvæmt upplýsingum úr ársreikningum lífeyrissjóðanna. Landssamtök lífeyrissjóða áætla að meðaltal hreinnar raunávöxtunar hjá lífeyrissjóðunum hafi numið 10,6% í fyrra. Ef 5 ára meðaltal sjóðanna er skoðað, er ávöxtunin hæst hjá Gildi lífeyrissjóði eða 11,0%, en þar næst kemur Lífeyrissjóður verzlunarmanna með 9,8% hreina raunávöxtun. LL áætla að 5 ára meðaltal í raunávöxtun sjóðanna hafi numið 8,3%. Upplýsingar um 10 ára raunávöxtun liggja aðeins fyrir hjá helmingi sjóðanna, m.a. vegna sameiningar þeirra á umliðnum árum. Í tíu ára meðaltalinu er Gildi lífeyrissjóður hæstur með 8,0% og fast á hæla honum er Lífeyrissjóður verzlunarmanna með 7,8% raunávöxtun. LL áætla að hrein raunávöxtun sjóðanna hafi numið s.l. 10 ár um 6,55%. Sjá töflu hér á eftir.
Þriðjudagur 31. 07. 07
Rýmka þarf fjárfestingarreglur lífeyrissjóðanna.
Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
"Mikilvægt er að gera frekari breytingar á ákvæðum um fjárfestingar lífeyrissjóða með það að markmiði að gera þær sveigjanlegri og skilvirkari," segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrisjóða, í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Fram kemur í greininni að frá gildistöku lífeyrissjóðalaganna hafi hlutfall verðbréfa með breytilegum tekjum og erlendar fjárfestingar aukist til muna. Á þeim tíma sem liðinn er frá gildistöku laganna hafi eignir lífeyrissjóðanna vaxið úr um 300 milljörðum í rúma 1.600 milljarða. Á sama tíma hafi orðið gríðarlegar breytingar á íslenskum fjármálamarkaði sem og á erlendum mörkuðum. Nauðsynlegt sé að rýmka fjárfestingarreglur sjóðanna og ekki sé trúverðugt að setja íslenskum lífeyrissjóðum þrengri fjárfestingarheimildir en erlendum lífeyrissjóðum sem munu mögulega reka starfsemi sína hér á landi.
Mánudagur 20. 02. 06
Forsætisráðherra skipar 10 manna nefnd sem á að samræma örorkumöt almannatrygginga og lífeyrissjóðanna og efla starfsendurhæfingu.
Með vísan til yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 15. nóvember s.l. til að greiða fyrir samkomulagi Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um áframhaldandi gildi kjarasamninga hefur forsætisráðherra skipað nefnd með fulltrúum stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins, Landssamtökum lífeyrissjóða og Öryrkjabandalags Íslands. Bolli Þór Bollason, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu hefur verið skipaður formaður nefndarinnar.